I want to hurt you, just to hear you screeming my name...
Tónlist á netinu
20.06.2007 09:36:37 / johajon

Nýja dótið og allt hitt...

Komnar stórfréttir, kallinn orðinn kafari fyrir rúmri viku síðan með 9,2 í einkunn á prófinu. Svo kom búningurinn og allir aukahlutir nema fit í gærkvöld og auðvitað varð maður að prófa fína dótið strax og maður komst heim, held reyndar að ég hafi hrætt Pálmar svolítið þar sem ég sat inn í stofu í fullum herklæðum að horfa á Sicko nýjustu mynd Michael Moore's með kafarahnífinn á lofti, en undarlegri hlutir hafa nú samt sést á Glaða Heimilinu en ekki verður farið út í það núna.

Edda er komin heim og kominn í fasta vinnu hjá Sjóvá. Ragna farinn út til Ameríku í vitleysuna hjá Bjarna Þór og kemur ekki heim á næstunni. Spái því meira að segja að hún komi með kall og svarta krakka næst þegar hún kemu í heimsókn til landsins en það verður víst bara að koma í ljós hvað framtíðin ber í skauti sér fyrir hana.

Annars er það svo að frétta frá Færeyjum að stelpurnar eru farnar að pressa á mig að koma á Ólafsvöku þetta árið þar sem ég beilaði síðast. Er meira að segja kominn með gistingu rétt hjá miðbænum, spurning hvort maður ætti að skella sér og kíkja á nýja bankann í leiðinni. En jæja spurning um að fara að halda aðeins áfram núna, meira seinna eins og alltaf.


» 3 hafa sagt sína skoðun

06.06.2007 13:32:34 / johajon

Nýjar fréttir af kallinum.

Jæja nú er loks komið að nýrri færslu enda mikið búið að gerast undanfarið. Hápunktar liðinna vikna eru þeir helstir að Edda er loks útskrifuð og er í útskriftarferðinni í þessum töluðu (skrifuðu) orðum og heyrst hefur að ferðin sé álíka klikkuð og Búlgaríu ferðin hans Pálmars í fyrra. Ég og Ragna fengum að taka í 300+ hestafla Mustanginn hans Pálmars frænda um helgina og það er alveg á hreinu að þegar maður fær gráa fiðringinn þá kaupir maður svona kvikindi...

Svo er ég loks búinn að fara að kafa tvisvar,  í Sundhöll Reykjavíkur á sunnudags morgun og á Þingvöllum í gær. Og það var ekkert grín að kafa á Þingvöllum ekki nógu vel klæddur eins og ég var, þurfti meira að segja að hætta aðeins á undan hinum því ég var hættur að finna fyrir puttunum. Svo er planið að fara aftur í kvöld betur klæddur og klára verklega hlutan í köfunarnáminu, bóklegi hlutinn klárast á mánudaginn, aldrei að vita nema maður verði orðinn official kafari eftir 5 daga.

 

Svo að öðru, sjómannadagurinn var um helgina og heppnaðist bara nokkuð vel þrátt fyrir leiðinlegt veður. Hefði verið gaman að hafa betra veður miðað við hversu mikið var búið að leggja í undirbúning, fengum stórvirkar vinnuvélar til að laga bryggjuna svo hún var orðin fólksbíla fær. Hlutur sem bærinn hefði reyndar átt að gera sjálfur fyrir löngu fyrir ferðamennina sem koma þarna niður að höfn.

En annars ætla ég að láta þetta nægja í bili en reyni kannski að hafa aðeins styttra í næstu færslu.

» 1 hafa sagt sína skoðun

06.05.2007 00:18:50 / JoJo

Köfun

Þó langt sé um liðið frá síðasta bloggi hefur lítið skeð í millitíðinni. Það helsta er að skólinn klárast í næstu viku og ég er byrjaður að læra köfun. Ég ætlaði nú reyndar ekki að fara út í köfun núna því þetta er ekkert ódýrt sport ef maður er að byrja en sölumaðurinn í kafarabúðinni var svo góður í starfinu að auk þess að selja mér hanska líkt og ég fór bara að kaupa seldi hann mér kafarabúning og námskeið með, 130 kall takk fyrir:( En þar sem Edda er kominn með svip sem mér líst ekkert á held ég hætti þessu núna og fari að drífa mig í háttinn.


» 8 hafa sagt sína skoðun

05.03.2007 15:46:40 / JoJo

Helgin.

Jæja nú er helgin loks liðiin og ný ógeðfelld skólavika byrjuð.

Hellstu afrek hlegarinnar voru þessi: Gera ekki neitt, horfa á sjónvarpið með nýja heimabíóið hátt stillt og já áður en ég gleymi því, drekkja 700.000 kr mótor í höfninni í Þorlákshöfn.

En meira var það ekki í bili og er að spá í að fara að halda áfram með skattaskýrsluna og litla bjórkassan minn. Keppnin um hvort klárast á undan er hörð og lítið hægt að segja til um úrslitin að svo stöddu...

 


» 7 hafa sagt sína skoðun

15.01.2007 08:57:52 / JoJo

Fjárfestingar

Komið nýtt ár og loksins nýtt blogg.

Merkilegir hlutir síðan síðast eru:

Nú búum við Pálmar bara tveir í íbúðinni.

Ragna flutt út til Danmerkur.

Prófin gengu vel.

Fjárfesti öllum peningunum mínum í áhættu mikla sjóði.

Búinn að mæta vel í skólann sem komið er.

Pálmar sér um að þvo þvottinn heima.

Við Edda búinn að tóra saman í 1 ár.

Man ekki eftir neinu fleirru í bili.


» 7 hafa sagt sína skoðun

17.11.2006 23:17:21 / JoJo

Próf.

Jæja, núna er maður cirka hálfnaður í prófum, bara ein vika eftir og loks komið föstudagkvöld og smá frí, búinn með 5 glös on nokkra bjóra. Vonandi að Edda lesi þetta ekki frekar en fyrri daginn eða eitthvað...

» 5 hafa sagt sína skoðun

06.11.2006 01:50:02 / JoJo

Veðurspá helgarinnar: Rok og þakplötur...

 

Jæja þá er helgin liðin og kannski bara kominn tími til svo maður fái einhverja hvíld. Planið var að fara austur og slappa af og læra, en þar sem verðrið aðfaranótt sunnudagsins var ekki til í þetta plan þurfti maður að eyða sunnudeginum klæddur eins og NeyðarKall.

Svona leit t.d. þakið á frystihúsinu út þegar leið á daginn og rokið aðeins minna.

Og fyrir þá sem hafa gaman af tölfræði þá voru í dag starfandi tæplega 9 björgunnarsveitarmenn á öllu höfuðborgarsvæðinu fyrir hvern 1 björgunarsveitarmann á Eyrarbakka á meðan íbúfjöldi svæðanna er þannig að 1 Eyrbekkingur er á við 300 borgarbúa. Spurning hvort bæjarsveitirnar ættu ekki að fara að hugsa sinn gang þegar einu útköllin sem þær fá mannskap í eru jeppaferðir...


» 1 hafa sagt sína skoðun

01.11.2006 14:09:34 / JoJo

Hvað þýðir: Ótakmarkað erlent niðurhal?

Þegar ég var að leita að ódýrari interneti fyrir heimilið áðan komst ég að því að orðið ótakmarkað hefur aðra merkingu hjá símafyrirtækjunum en okkur öllum hinum, því þetta eru skilgreiningarnar sem ég fann á heimasíðum fyrirtækjanna.

Síminn:

Ótakmarkað erlent niðurhal = Minna en síendurtekið óhóflegt erlent niðurhal.

Hive:

Ótakmarkað erlent niðurhal = Minna en sem svarar 60 GB á 30 dögum að jafnaði.

BTnet:

Ótakmarkað erlent niðurhal = Minna en það magn raskar þjónustu BTnets.

Vodafone:

Ótakmarkað erlent niðurhal = Minna en 40 GB á mánuði.

Mín skilgreining:

 Ótakmarkað erlent niðurhal = Ótakmarkað erlent niðurhal.

Ég er reyndar að brjóta grundvallar reglu í skilgreiningum með því að nota orðið sem ég er að skilgreina í skilgreiningunni en þetta var bara af því að ég var ekki nógu frumlegur eins og símafyrirtækin...


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.10.2006 18:48:10 / JoJo

íslenskir ofstækismenn...

Þar það er svo langt síðan ég hef nokkuð bloggað fannst mér rétt að rjúfa þögnina með þessum stórskemmtilega pósti sem ég fékk í vinnunni og allir líklega búnir að sjá. En fyrir þá sem það hafa ekki þá er þetta smá ádeila á þessa Kikkuðu íslensku bókhafstrúar leiðtoga sem fengu ekki nauðsynlega sálfræðiaðstoð í æsku...

 

Opið bréf til Gunnars í Krossinum, Jón Vals Jenssonar, Snorra í Betel sem og annarra bókstafstrúarmanna sem hafa "Sannleikann" sín megin og birtu m.a. auglýsingu í Morgunblaðinu varðandi "lækningu" við samkynhneigð:

Kæru bókstafstrúarmenn,
Kærar þakkir fyrir upplýsa fáfróðan almenning á Íslandi varðandi "Guðs lög" sem og um "sannleikann". Það er ljóst að það er mjög margt sem maður getur lært frá ykkur - vitrari mönnum - og ég reyni t.d. að miðla ykkar fróðleik eins víða og ég get þar sem ég tel ykkur vera eins og þið segið - boðberar sannleikans í einu og öllu. Það eru hinsvegar nokkur atriði sem ég þarf aðstoð við varðandi "Guðs orð" því eins og þið bentið alltaf á, er sannleikurinn að finna í guðs orði sem og orð Guðs er óbreytanlegt og eilíft. Eftir að hafa lesið Guðs orð undanfarið langar mig að biðja ykkur að fræða mig aðeins um eftirfarandi:

1. Mig langar að selja dóttur mína í þrældóm eins og leyft er í Exodus 21:7
- hvað teljið þið eðlilegt markaðsverð fyrir hana þar sem þið eruð jú sérfræðingarnir hérna, er 18 ára og gullfalleg.


2. Ég veit að ég má ekki hafa neitt samband af neinu tagi við konu á meðan hún er ´"túr" sbr. Lev 15:19-24....vandamálið er hvernig ég segi henni þetta ? Virðast flestar bara móðgast.....


3. Í Lev 25:44 segir skýrt að ég megi hafa þræla - bæði karlmenn sem og konur, svo framarlega sem þeir eru keyptir frá nágrannalöndum okkar. Vandamálið er að ég er mjög hrifinn af Þjóðverjum og því langar mig að spyrja af hverju ég megi ekki eiga þræla frá Þýskalandi þótt það sé ekki nágrannaland okkar ?


4. Ég á vin sem krefst þess að vinna á "Sabbath" deginum. Í Exodus 35:2 segir skýrt að hann skuli tekinn af lífi fyrir slíkan óhæfuverknað. Er ég skyldugur til að drepa hann sjálfur eða get ég látið öðrum það eftir ? 5. Í Lev 21:20 segir skýrt að ég megi ekki nálgast altari guðs ef ég hafi sjónskekkju , þ.e. ekki fullkomna sýn. Ég verð að viðurkenna að ég nota lesgleraugu - er ekki eitthva svigrúm hérna svo ég geti nálgast altari guðs?

 

6. Flestir karlkyns vinir mínir fara í klippingu og snyrta nefhár osvfrv.,þrátt fyrir að þetta sé stranglega bannað skv. Lev 19:27. Á hvaða hátt ber að taka þessa menn af lífi ?


7. Frændi minn er bóndi. Því miður brýtur hann Lev 19:19 þar sem hann er með 2 uppskerur á sömu jörð. Kona hans brýtur einnig sama ákvæði Guðs orðs með því að nota 2 mismunandi efni í fötin sín (Cotton/Polyester). Hann blótar einnig og rífur kjaft. Er það virkilega nauðsynlegt að safna öllum bæjarbúum til að grýta þau til dauða eins og segir í guðs orði (Lev 24:10-16) ? Er ekki bara hægt að brenna þau til dauða innan fjölskyldunnar, eins og við gerum með fólk sem sefur hjá ættingjum sínum ?


Ég veit að þið hafið skoðað og lært þessar kenningar í einu og öllu svo ég er sannfærður að þið getið hjálpað. Og síðast en ekki síst - bestu þakkir fyrir að benda okkur á að Guðs orðs er ÓBREYTANLEGT og EILÍFT.


Bestu kveður,
Hinir fáfróðu


» 3 hafa sagt sína skoðun

02.10.2006 09:41:41 / JoJo

Helgin...

Jæja þá er helgin búinn og næstum að maður segji loks því hún var tileinkuð lærdómi. En annars var ég að klára fyrsta miðsvetrarprófið í dag, gekk bara nokkuð vel þrátt fyrir nokkrar klaufavillur, borgar sig að lesa spurningarnar betur.
Svo er skemmtilegt að segja frá því að núna í gærkvöld fékk ég loks að fara í bíltúr sem braut engin lög þótt hraðinn væri farinn að nálgast annað hundraðið. Ástæðan: Einhver svíi var að príla upp á Ingólfsfjalli og leiddist að vera einn

Fjallasvi.jpg

Þar til næst...


» 4 hafa sagt sína skoðun

10.09.2006 18:41:51 / JoJo

Melónu sprengja!!!

Jæja loksins tókst þetta, var að verða crasy á að finna út hvernig hægt væri að setja inn video á síðunna.

En svona annars þá er þetta video af projecti síðustu helgar en þá var gerð tilraun til að sprengja upp melónu.

Til þess að njóta videosins þarf að hækka vel í þessu því af öryggis ástæðum var cameran í 40 metra fjarlægð í sprengjuheldum kassa og því heyrist aðalega bara vélahljóðin úr myndavélinni sjálfri.

Verður bætt úr þessu næst því ég er búinn að redda stefnuvirkum mic til að tengja við vélinna og hafa fyrir utan kassan.

P.s. Magga hérna kemur bloggið sem þú baðst um;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

14.08.2006 12:48:18 / JoJo

Sprengjusveit Landhelgisgæslunar!!!

Jæja þá er ný vika byrjuð og ein mjög athyglisverð liðinn.

En allt byrjaði á sunnudaginn fyrir viku þegar ég ætlaði að njóta þess að vera í fríi og skella mér í smá laxveiði. Það fór ekki betur en svo að bílskúrinn fyrir austan fylltist af sprengikúlum úr síðari heimsstyrjöldinni.

Svo rann upp mánudagur og planið var að fara eina ferð með Herjólfi til Eyja og passa fyllibyttur á leið af þjóðhátíð. Það plan breyttist aðeins og ég endaði í Skaftafelli að leita að einhverjum gaur langt fram á nótt sem gerði þriðjudaginn að einstaklega erfiðum vinnudegi. Reyndar var þriðjudagurinn ekkert sérstaklega auðveldur að neinu leiti því Edda var að fara til útlandana um nóttina og maður gat þá auðvitað ekki farið beint að sofa eftir vinnu. Svefn var heldur ekkert mikið á dagskrá um nóttina því ég skutlaði skutlunum þeim Eddu og Mörtu upp á flugvöll um 3 leitið.

Svo kom annar erfiður vinnudagur og að honum loknum var farið austur á bakkan að fjarlægja allar sprengjurnar úr vaskinum í bílskúrnum og koma þeim í öruggari geymslu. Áður en ég gekk frá þeim tók ég þó þessa mynd til að geta fengið sérfræði álit á nýja dótinu. 

UXO.jpg

 

 



Svo eftir alla þessa vitleysu og smá skyndihjálpar æfingu í björgunarskýlinu var haldið í bæinn til að ná sér í smá svefn, sem eins og venjulega var vel innan við 8 tímana.

Dagurinn eftir erfiður eins og alltaf og það eina áhugaverða var að eftir að hafa sent EDO sveit Landhelgisgæslunnar póst með myndinni af dótinu vildu þeir endilega hitta mig og skoða nýja dótið mitt. Ákveðið var að þeir myndu kíkja á Bakkann eftir vinnu daginn eftir þ.e. á föstudaginn. Restin af deginum fór svo í að leggja rafmagn í skottið á corolluni sem stóð til rúmlega 1. Þannig að ekki var svefnskorturinn unnin upp þessa nóttina. Það kom reyndar ekki að sök því spenningurinn við að frá Sprengjusveitina í heimsókn hélt mér vel vakandi daginn eftir og eftir vinnu var "brunað" austur til að taka á móti gaurunum. Þegar þeir loks rötuðu í heim og búið var að sýna þeim dótið komust þeir að þeirri niðurstöðu að öruggast væri að sprengja allt í tætlur því allar sprengjurnar voru virkar. Þeir reyndar fengu ekki að gera nokkuð fyrr en eftir kvöldmat, því mamma tók ekki alveg nei-in þeirra gild. Eftir kvöldmat var dótið fjarlægt og ákveðið að sprengja þetta frekar á sértöku svæði þeirra en í fjörunni á bakkanum. En þegar þangað var komið kom í ljós að flugumferð var of mikil svo hægt væri að sprengja þetta á öruggan hátt. Sem var mjög leiðinlegt því mig og Pálmar hlakkaði svo mikið til...

 

 



En annars er færslan orðin allt of lögn og ég nenni ekki að segja frá meiru í bili. Í lok vikunnar kemur svo vonandi spennandi færsla um frækileg björgunarafrek af hálendinu en þangað er ferðinni heitið á miðvikudaginn með björgunarsveitinni.


» 4 hafa sagt sína skoðun

04.08.2006 12:52:04 / JoJo

4-4-2....

Jæja þá er farið að síga á seinni helming þessa dags og styttist óðfluga í hina mögnuðu Verslunarmannahelgi. En reyndar gæti mér ekki verið meira sama í þetta skiptið, því ég er víst að vinna á morgun þó þetta sé ekki vinnuhelgin mín og einnig er ég að vinna á mánudaginn. Og sem verra er þá verður það sjálfboðaliðsvinna... Reyndar verður það til þess að ég fæ að fara til eyja. Spurning hvort ég geti sagt að maður hafi farið á þjóðhátíð þegar maður fer fram og til baka með Herjólfi non-stop. Annars verður helgin ekki að öllu leiti glötuð, stefnan er að fara í veiði á sunnudaginn. Og meira að segja skiptir það ekki öllu máli þó maður myndi ekki gera neitt, fríið verður langþráð því þarna verð ég aðeins búinn að eiga 2 frídaga á 41 daga tímabili. Ekki alveg þetta 2 af 7 eins og hjá venjulegu fólki og meira að segja ekki eins og það er yfirleitt hjá mér, 2 af 14. En svona þar fyrir utan þá er planið núna næstu vikurnar þannig að 11-13 verður gengið Laugarveginn milli Landmannalauga og Þórsmerkur og ef einhver hefur áhuga á að koma með þá endilega sláið á þráðin. Svo eftir vinnu 15 er stefnan tekinn á hálendið og ætlunin að eyða þar 3 dögum í hálendisgæslu þannig að ef eitthver af ykkur sætu stelpunum þarna úti langar til að láta bjarga sér þá er málið að lenda í vandræðum á Sprengisandi milli 15 og 18. En þar til næst...

» 1 hafa sagt sína skoðun

21.07.2006 14:42:23 / JoJo

Partý á Litlahruni...

Jæja svona aðeins til að koma fólki í útilegu stuðið þá verður útilegu upphitun ársins í bakgarðinum hjá mér á Túngötu 33 á Eyrarbakka á morgun. Og ykkur öllum boðið. Opinber daskrá byrjar um 20:02 en húsið opnar um 18:00. Fyrir þá sem ætla að tjalda í garðinum er mælt með að mæta snemma til að ná góðum stað langt frá heitapottinum. Einhver tjöld verða á staðnum en til öryggis er mælt með að fólk komi líka með sín eigin.

 

 

 

Miðaverð: 5 kr.

 

 

 

Innifalið í miðaverði: Tjaldsvæði og aðgangur að partý place-inu og heitapottinum meðan pláss leyfir.

 

 

 

Nauðsynlegir aukahlutir: Áfengi, sundföt, Sunblock( því eins og alþjóð veit þá er alltaf sól á Eyrarbakki), Bjór og tjald.

 

 

 

Frekari upplýsingar fyrir áhugasama fást hjá mér í síma: 898-1366

 

 

 

Húsið við hliðina...


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.06.2006 21:31:43 / JoJo

The last part.

Jæja þá er komin að því verklega prófið klukkan 8 í fyrramálið. Það þýðir sem sé að ég náði bóklega prófinu í þó ótrúlegt sé. En annars er ósköp lítið að frétta, bara vinna og aftur vinna. Maður er til dæmis að vinna um helgina þannig að það verður ekkert landsmót hjá mér eins og búið var að plana í haust. Svo verð ég víst að vinna helgina eftir það og svo aftur helgina eftir það. Humm gaman gaman ég verð þá víst að vinna í 26 daga í röð, hélt ég væri vaxinn upp úr svoleiðis...


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5